Hvort sem þú ert að fara af stað með nýjan vef eða vilt bæta núverandi síðu, þá fæ ég lausn sem passar við þín markmið, rekstur og fjárhagsáætlun.
Hönnun og uppsetning á WordPress vefsíðum sem eru hraðar og auðveldar í notkun. Hentar bæði nýjum verkefnum og eldri vefjum.
Uppsetning á vefverslunum í WordPress með WooCommerce og greiðslulausnum. Lausnir sem styðja við sölu og einfalda rekstur.
Reglulegt viðhald, uppfærslur og tæknileg aðstoð við WordPress-vefi. Ég laga einnig villur og vandamál og held vefnum öruggum og í góðu ástandi.
Grunnuppsetning og fínstilling fyrir Google til að bæta sýnileika. Bætir uppbyggingu, hraða og árangur vefsins.
Bókunarlausnir fyrir þjónustu, leigu og námskeið með sjálfvirkum ferlum. Dagatal, greiðslur og umsýsla á einum stað.

Notkun gervigreindar við vefsíðugerð, efnisvinnslu og SEO. Sérsniðnar lausnir fyrir WordPress og WooCommerce.
Ég tek að mér WordPress-vefi sem aðrir hafa smíðað. Ef vefurinn er orðinn hægur, sýnir villur, hefur ekki verið uppfærður lengi eða þú veist einfaldlega ekki í hvaða ástandi hann er, get ég hjálpað þér að finna út úr stöðunni.
Hönnun á útliti og notendaupplifun sem styður markmið vefsins. Aðlögun þema og vinna með WordPress og Figma.
Yfirferð og lagfæringar á öryggi WordPress vefsins gegn veikleikum. Ver vefinn og tryggir stöðugan rekstur.
Aðstoð við val á lausnum og uppbyggingu vefsins út frá markmiðum. Fer yfir verkefnið og legg til rétta nálgun.
Ég veiti WordPress þjónustu fyrir fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga á Íslandi. Þjónustan nær bæði til nýrrar vefsíðugerðar og aðstoðar við núverandi WordPress-vefi – meðal annars uppfærslur, viðhald, bilanagreiningu, WooCommerce, hraðabætur og SEO.
Þú ert í beinu sambandi við mig í gegnum verkefnið og færð lausn sem miðast við þarfir vefsins og rekstursins.
Ef þú ert ekki viss hvaða þjónusta hentar best, sendu mér línu og ég fer yfir verkefnið með þér.