Viðhalds- og þjónustuleiðir fyrir WordPress
Haltu WordPress vefnum þínum öruggum og uppfærðum – án vesens.
Hvort sem þú vilt reglulegt viðhald á föstu verði eða þjónustu eftir þörfum, sé ég um að halda vefnum þínum öruggum, uppfærðum og í toppstandi.
- Engin binding
- Sveigjanlegar lausnir
- Þjónusta á íslensku
- 25+ ára reynsla
Veldu rétta viðhaldsleið
Ég býð upp á mismunandi viðhaldspakka fyrir WordPress vefi – allt frá einföldu grunnviðhaldi yfir í fulla umsjón.
Hér að neðan sérðu pakkana og hvað hentar best eftir umfangi og þörfum vefsins.
Verð eru án VSK. Ef áskriftir eru greiddar 12 mánuði í senn er gefinn 15% afsláttur. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um þessa þjónustu.
Litli pakkinn
Fyrir einfalda vefi
Hentar minni vefsíðum sem þurfa einfalt og áreiðanlegt viðhald.
- Reglulegar uppfærslur á WordPress, þemum og viðbótum
- Grunnöryggi og vöktun á virkni vefs
- Eftirlit með virkni vefsins
- Aðstoð við minni breytingar eftir þörfum
Mið pakkinn
Vinsælasta lausnin
Hentar meðalstórum vefjum, minni vefverslunum og bókunarsíðum. Gott jafnvægi milli reglulegs viðhalds og sveigjanlegrar þjónustu.
- Allt sem fylgir litla pakkanum
- Reglulegt eftirlit og stöðugleiki
- Forgangur í þjónustu (hraðari svörun)
- Reglulegar efnisbreytingar (texti og myndir)
- Smærri lagfæringar og úrbætur
- Besti kosturinn fyrir flesta vefi.
Stóri pakkinn
Fyrir kröfuharða vefi
Hentar stærri vefsíðum, vefverslunum og bókunarkerfum sem þurfa reglulega umsjón og hraða þjónustu.
- Allt sem fylgir mið pakkanum
- Regluleg umsjón og yfirferð á vefnum
- Hraðari viðbragðstími
- Meiri breytingar og tækniaðstoð eftir þörfum
- Tækniþjónusta og ráðgjöf
- Fyrir vefi sem þurfa stöðuga umsjón
Hvernig velur þú réttan pakka?
Ef þú ert með einfaldan vef og þarft lítið viðhald, dugar litli pakkinn oft vel.
Ef þú uppfærir efni reglulega eða vilt hafa aðgang að þjónustu, er mið pakkinn vinsælasti kosturinn.
Stóri pakkinn hentar þeim sem vilja lágmarka allt vesenið og hafa reglulega umsjón og hraða þjónustu.
Þjónusta eftir þörfum
Ef þú vilt ekki vera í áskrift er hægt að kaupa þjónustu eftir þörfum. Þetta hentar vel fyrir einstök verkefni, breytingar eða uppfærslur – þegar þú þarft ekki fasta áskrift.
- Stakur tími: 18.900 kr. + vsk
- Hægt að kaupa fleiri tíma með afslætti
Þetta hentar vel fyrir einstök verkefni, breytingar eða uppfærslur.
WordPress viðhaldspakkar og þjónustuleiðir
WordPress viðhaldspakkar eru einföld leið til að tryggja að vefsíðan þín sé alltaf uppfærð, örugg og í toppstandi. Með reglulegu viðhaldi er hægt að koma í veg fyrir bilanir, bæta hraða og tryggja að allt virki eins og það á að gera.
Hvort sem þú velur fasta viðhaldsleið eða þjónustu eftir þörfum, þá er mikilvægt að halda WordPress kerfinu, þemum og viðbótum uppfærðum. Það hefur bein áhrif á öryggi, stöðugleika og árangur vefsins.
Rétt val á viðhalds- og þjónustuleið fer eftir stærð vefsins og hversu mikið þarf að uppfæra eða breyta. Með sveigjanlegum lausnum er hægt að velja pakka sem passar bæði við þarfir og fjárhagsáætlun.
Algengar spurningar um WordPress viðhald
Algengar spurningar um WordPress viðhald, verð og þjónustuleiðir. Hér finnur þú svör við því sem flestir vilja vita áður en þeir velja viðhaldspakka.
Hvað kostar WordPress viðhald?
Verð á WordPress viðhaldi fer eftir umfangi vefsins og hversu mikla þjónustu þarf. Hjá mér geturðu valið fasta mánaðarlega viðhaldspakka eða keypt þjónustu eftir þörfum. Minni vefir komast oft vel af með einfaldan pakka, á meðan vefverslanir og bókunarkerfi þurfa yfirleitt meiri og reglulegri þjónustu.
Af hverju er WordPress viðhald mikilvægt?
WordPress, þemu og viðbætur eru stöðugt uppfærð. Ef vefur er ekki uppfærður reglulega getur það valdið öryggisvandamálum, hægari hraða og jafnvel því að vefurinn hætti að virka rétt. Reglulegt viðhald tryggir að vefurinn sé öruggur, hraður og í toppstandi.
Hvað felst í WordPress viðhaldi?
WordPress viðhald felur yfirleitt í sér uppfærslur á WordPress kerfinu, þemum og viðbótum, eftirlit með virkni vefsins og aðstoð við smærri breytingar. Í stærri pakkum bætist við hraðari þjónusta, meiri aðstoð og tæknileg ráðgjöf eftir þörfum.
Hversu oft þarf að uppfæra WordPress vef?
Best er að uppfæra WordPress reglulega, oftast vikulega eða mánaðarlega eftir umfangi vefsins. Vefverslanir og bókunarkerfi þurfa yfirleitt tíðari uppfærslur til að tryggja stöðugleika og öryggi.
Hvernig veit ég hvaða viðhaldspakki hentar mér?
Ef þú ert með einfaldan vef og þarft lítið viðhald, dugar litli pakkinn oft vel. Fyrir vefverslanir eða síður sem eru uppfærðar reglulega er mið pakkinn vinsælasti kosturinn. Stóri pakkinn hentar þeim sem vilja lágmarka allt vesen og hafa reglulega aðstoð og hraða þjónustu.
Get ég fengið þjónustu án áskriftar?
Já, það er alltaf hægt að kaupa þjónustu eftir þörfum. Það hentar vel fyrir einstök verkefni, breytingar eða uppfærslur, en áskriftarleiðir eru yfirleitt hagkvæmari til lengri tíma.
Hvað gerist ef vefurinn minn lendir í vandræðum?
Ef eitthvað kemur upp á er mikilvægt að bregðast fljótt við. Með viðhaldspakka færðu forgang í þjónustu og hraðari viðbragðstíma, sem getur skipt miklu máli ef vefurinn fer niður eða eitthvað bilar.
Hentar WordPress viðhald fyrir vefverslanir og bókunarkerfi?
Já, sérstaklega. Vefverslanir og bókunarsíður eru viðkvæmari fyrir villum og þurfa reglulegt viðhald til að tryggja að greiðslur, bókanir og virkni gangi hnökralaust.